Sérsniðið æfingaprógram

Æfingaprógram sérsniðið að þínum þörfum og markmiðum. 

Þú sendir inn stöðumat þar sem ég met þína getu ásamt markmiðum og byggi þar með upp prógram sem hentar þér. 

Auðvelda þér leiðina að þínum markmiðum með því að rétta þér þau verkfæri sem henta þér. Velja æfingar og áherslur sem þú þarft til þess að ná lengra í þínu, hvort sem að það er Crossfit, almennt hreysti, þjálfun eftir meiðsli eða fókus á aðrar íþróttir.

Sérsniðið plan er fyrir alla, bæði fyrir byrjendur sem eru að stíga sín fyrstu skref í hreyfingu, eða sá sem eru á kafi í Crossfit, afreksíþróttum eða annað. Það að prógram sé sérsniðið þýðir að það er búið til fyrir ÞIG, núna, á þeim stað sem þú ert í dag.  

Að sjálfsögðu með tilliti til þeirrar æfingaaðstöðu sem þú hefur. 

4 vikur | 14.990 kr