Næringarþjálfun 8 vikur
Næringarþjálfun
Næringarþjálfunin okkar snýst um að læra að næra sig vel og byggja upp heilbrigt og sjálfbært samband við mat, hreyfingu og eigin líkama.
Við skoðum samspil næringar, svefns og hreyfingar við andlega og líkamlega heilsu og finnum það jafnvægi sem hentar þér og þínum hversdegi – hvort sem þú ert afreksíþróttamaður, foreldri, námsmaður eða einfaldlega vilt líða betur og ná lengra í þínu lífi.
Fókusinn er ekki eingöngu á matinn heldur einnig á heildarmyndina. Við skoðum venjur, hugarfar og það sem kann að standa í vegi fyrir heilbrigðu sambandi við mat og hreyfingu. Markmiðið er að finna skipulag sem passar inn í þitt líf, en ekki að þú þurfir að laga líf þitt að einhverju fyrirfram ákveðnu kerfi.
Næringarþjálfun hentar öllum sem vilja ná lengra í sínu – hvort sem markmiðið er bætt heilsa, betri líðan, breytt líkamsamsetning eða aukinn árangur í íþróttum.
Þú lærir að skilja matinn sem þú borðar, orkuefnin þrjú – kolvetni, prótein og fitu – og hvað hentar þér best. Engin boð og bönn, heldur fræðsla, fjölbreytni og sveigjanleiki.
Tvær leiðir
Við bjóðum upp á tvær leiðir í næringarþjálfun. Þú getur valið að telja macros eða fylgja persónulegum matseðli. Eftirfylgnin og endurgjöfin byggja á sömu grunnhugsun – að hjálpa þér að læra á líkamann þinn og finna það sem hentar þér.
Macros-þjálfun
Macros-leiðin hentar þér sem vilt læra að halda utan um næringuna þína og skilja betur hvað líkaminn þinn þarf.
Í upphafi skilar þú inn upplýsingum um þig, markmið, myndum og mælingum eftir samkomulagi. Út frá þeim upplýsingum eru reiknuð út þín persónulegu macros og þú færð leiðbeiningar um hvernig best er að fylgja þeim í appinu.
Þú skráir matinn þinn í MyFitnessPal, þar sem þú færð yfirsýn yfir kolvetni, prótein, fitu og trefjar.
Í vikuskilum sendir þú inn yfirlit yfir vikuna ásamt þeim upplýsingum sem við höfum ákveðið að fylgjast með. Við förum yfir stöðuna og aðlögum macros eftir þörfum.
Vikuskil, vigtun og mælingar eru sniðin að þörfum hvers og eins.
Markmiðið er ekki að þú þurfir að vigta og skrá allt sem þú borðar til framtíðar. Talning macros er verkfæri sem hjálpar þér að læra á líkamann þinn, næringarþörfina þína og hvað hentar þér best.
Matseðlaþjálfun
Matseðlaþjálfun hentar þér sem vilt einfaldan og skýran ramma án þess að þurfa að telja eða skrá macros í appi.
Þú færð persónulegan og fjölbreyttan matseðil sem er útbúinn út frá þinni orkuþörf, lífsstíl og markmiðum.
Hvernig virkar það?
-
Sveigjanlegur matseðill: Þú færð fjölbreytta valmöguleika fyrir morgunmat, hádegismat, kvöldmat og snarl og getur valið það sem hentar þér hverju sinni.
-
Persónulegar skammtastærðir: Magnið er stillt út frá þinni orkuþörf og markmiðum.
-
Vikuleg skil og eftirfylgni: Þú skilar inn stuttu formi einu sinni í viku þar sem við fylgjumst með framförum, líðan og orkustigi.
-
Aðlögun eftir þörfum: Vantar þig meiri fjölbreytni, vilt skipta út réttum eða henta skammtarnir þér ekki? Þá aðlögum við matseðilinn í vikuskilunum svo hann passi betur að þínum hversdegi.
Þú færð hlekk á vikuskilaformið áður en ferlið hefst.
Eftirfylgni og stuðningur
Þú færð aðgang að XPS Sideline þar sem þjálfunin fer fram og þar færðu endurgjöf eftir vikuskil.
Endurgjöf berst innan 24 klst. frá skilum, að undanskildum laugardögum.
Opið er fyrir spurningar 24/7 og þeim er svarað innan 24 klst., að undanskildum laugardögum.
Markmiðið er að þú sért ekki bara að fylgja planinu heldur lærir að skilja eigin líkama, næringu og venjur svo þú getir tekið þekkinguna með þér áfram.
VERÐ
8 vikna næringarþjálfun
27.500 kr.
Persónuleg næringarþjálfun með macros eða persónulegum matseðli út frá orkuþörf, vikulegum skilum og endurgjöf. Aðlögun eftir þörfum og opið fyrir spurningar 24/7.
Áframhaldandi eftirfylgni – 4 vikur
11.500 kr.
Vikuleg skil og endurgjöf, endurútreikningur á macros eftir þörfum og opið fyrir spurningar 24/7.
Eftir að 8 vikum er lokið.
Mánaðarleg eftirfylgni
6.500 kr. / mán.
1 vikuskil á mánuði, endurmat og opið fyrir spurningar 24/7.
Í boði eftir 20 vikur samfleytt.
Greiðsla þarf að hafa borist áður en þjálfun hefst.
.