ONtrack-Fitness
ONtrack Fitness er CrossFit-mix prógram sem sameinar styrktaræfingar, þolþjálfun og fjölbreytta hreyfingu í markvissri og aðgengilegri uppbyggingu.
Æfingarnar miða að því að:
-
auka orkunotkun og styðja við fitutap
-
bæta úthald, styrk og hreyfigetu
-
efla almenna líkamlega getu í daglegu lífi
Prógrammið er byggt upp þannig að það hentar bæði byrjendum og lengra komnum. Æfingar eru auðveldar í framkvæmd og hægt að skala álag eftir getu.
Öll prógrömm, myndbönd og leiðbeiningar eru aðgengileg í XPS appinu, þar sem þú færð skýrar útskýringar á framkvæmd og uppbyggingu æfinga.
ONtrack Fitness er fyrir þá sem vilja æfa fjölbreytt, finna fyrir framförum og byggja upp betra form – án óþarfa flækju.